Velkomin(n) á heimasíðu deildar íslenska fjárhundsins í Danmörku 

Hér getur þú lesið um íslenska fjárhundinn, um sögu hans, lund og helstu eiginleika. Þú getur m.a. fengið upplýsingar um starfsemi klúbbsins, um aðild að honum og um kaup á hvolpum. Valglugginn hér til vinstri veitir aðgang að frekari upplýsingum. 

Íslenski fjárhundurinn er af gömlu norrænu „spids“-hundakyni, en sú tegund var þekkt þegar á steinöld. Íslenski fjárhundurinn barst til Íslands á landnámsöld með norrænum víkingum og hefur upp frá því verið þekktur sem „íslenski fjárhundurinn“. 

Séreinkenni hans er mjótt trýni, upprétt eyru og hringað skott. Meðalhæð hans er á milli 40 - 48 sm. 

Við fyrstu kynni koma í ljós aðal hundsins, sem er glaðlynd lund, öruggt, forvitið og greindarlegt fas. Þetta eru blíðir hundar sem þarfnast náinna samskipta við manninnn til að hið góða eðli þeirra og geðslag nái sem bestum þroska. Af þessum sökum teljast þeir mjög heppilegir sem fjölskylduhundar. 

Íslenski fjárhundurinn er smalahundur og því viljugur til verka. Hann er fróðleiksfús og því er auðvelt að kenna hundinum ýmis verk. Hann er einnig harðger og sjálfstæður, en hefur hins vegar lítinn hug til veiða.